Út í óvissuna

Entries tagged as ‘Klifur’

Gleðilegt ár

janúar 2, 2010 · 2 Ummæli

Gleðilegt ár hlustendur góðir og takk fyrir að lesa bloggið á árinu sem er búið.

Það var svaka flugeldasýning á gámlárskvöld, svipaður pakki og aðfangadagskvöld samt. Allir sátu í hring og svo var hlaðborð.

Ég er kominn með kvef.

Hér eru svo nokkrar myndir frá klifri.

Flott mynd

Petter reynir á sig af öllum krafti.

Scott, ljósmyndari sem vinnur í Mumbai

Önnur góð af Petter

Tomi Lindroos veltir fyrir sér klifrinu.

Þetta er Erin frá Ástralíu

Tomi aftur, rústar leiðinni

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , ,

Hiti, klifur og Thai nudd í Hampi

desember 19, 2009 · 1 ummæli

Núna erum við búin að vera akkurat 3 vikur í Hampi. Eins og flestir hafa líklega heyrt þá er Helga búin að kaupa flugmiða heim, 28. desember en ég verð áfram í Hampi þar til ca. 20. janúar.

Við erum búin að vera að klifra nánast á hverjum degi, fyrir utan nokkra hvíldardaga.

Helga fór í vikunni í námskeið í thailensku nuddi, hjá Cyriac Joseph. Hún lærði “Level 1″, sem er lappir, hendur, axlir, höfuð og andlit.

Fyrir utan það er ekki mikið að frétta, þannig að þetta er stutt færsla með eingöngu einni mynd…

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , , , ,

Hampi, aftur

desember 8, 2009 · 2 Ummæli

Við erum komin heim….heim til Hampi það er segja. Þvílík kyrrð fæst hvergi nema í Hampi og garðinum í Reykjabyggð 10 :)

Við höfum klifrað aðeins og svo haft það gott með góðu fólki hér á gistiheimilinu. Við fengum aftur herbergi á Goan Corner. Sharmilla og Thakor, maðurinn hennar, reka það með Amit, sex ára gutta í spidermanbol og með skínandi plast-riffil. Strákar eru allsstaðar eins :)

Addi og Mattias spila skák og drekka ógeðisdrykki

Klukkan er 7 um morgun…ennþá svalt og já, Addi getur vaknað snemma er hann langar til þess!

Farið að hitna í kolunum…

Fyrsta klifursárið hennar Helgu, hún var mjög stolt! (enginn verður óbarinn biskup og allt það)

Þessar kellur koma annnan hvern dag og selja ávexti og hafa gert það í 12 ár. Fyrst kaupir Sharmila fyrir veitingastaðinn og svo megum við spreyta okkur. Þær eru æði þegar þær koma innkeyrsluna allar með körfuna sínar á hausnum :)

Hjónin á Goan Corner að búa til Nutella-doghnuts…keinuhringjadeig fyllt með súkkulaðismjöri og svo djúpsteikt. Nammi gott…Sharmilla bakar eina tegund af eftirrétt (sykurgúmmulaði) á hverju kvöldi  :)

Myntu te…Helgu fannst það bara svo fallegt!

Prinsinn af Goan Corner!

Þetta er kökumaðurinn (cakeman)…hann röltir um klettana og selur klifrurum kökur :) Við höfum ekki enn keypt, við höfum ekki list á kökum klukkan átta á morgnana.

Þetta er svona skrítinn Indverskur maður sem að lifir í Asram (gistiheimili eða lítið samfélag þar sem allir fylgja sama gúrúinum), maðurinn á myndinni stundar jóga og hugleiðir, ferðast um með enga peninga og lifir á peningagjöfum. Hann gaf okkur öllum rautt og svart fræ (til heilla)  og í staðinn fékk hann 10 rúbís (30 krónur).

Við fórum til Hampi town á föstudaginn með Tomi frá Finnlandi. Það var einhver hátíð, verið að fagna því þegar Rama og Shita (guðir) giftu sig. Við héldum að það ætti að taka vagninn út og draga hann eftir aðalgötunni (á vagninum er um 7 metra há stytta af Rama sem er skreytt með blómum og drasli). Það var ekki málið en okkur var sagt að á þessari hátíð kemur fólk frá nágrannabæjunum og hanga í Hampi. Klæða sig upp fara í hofin, biðja og svo hanga og tjilla fram á nótt..bara þetta sem við gerum á jólum og páskum…borða og tjilla saman og háma í sig nammi :)

Helga við nammibarinn…ekki svo gott nammi :/

Mannfjöldinn að fara í hofið eða musterið eða hvað sem þetta kallast á ísl :)

Þetta er svona duft til þess að skreyta sig í framan, rauða doppan og fleira skemmtilegt.

Perlufestar og fleira til sölu

Þessi kunni ekki ensku svo við vissum aldrei hvað var hægt að hlusta á!

Addi og Tomi að rölta, báðir mjög röltlegir!

sdfgsfd gsdfgs dfsdf

Þessi feita geit fékk græn horn fyrir hátíðina

nei þetta er sko ekki stelpu-mótorhjól!

Strákurinn stóð upp og ætlaði að færa sig þegar Addi tók myndina og var ekkert smá ánægður þegar Addi bað hann að setjast aftur. Olíulampar til sölu.

Jólagjöfin í ár!

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , , , , ,

Klifur í Hampi, Indlandi

október 7, 2009 · 11 Ummæli

Hér fylgir dálítið klifurnördalegt blogg, svo þeir sem hafa ekki mikinn áhuga á því ættu að forða sér…

Hampi

Klifur í Hampi (31)

Klifur í Hampi (6)

(Hér er gallerý með fleiri myndum)

Ég og Helga höfum verið að fara í gegnum Indland með stoppum hér og þar. Það sem hefur verið mest spennandi í mínum augum er að fara til Hampi í Karnataka. Það er þekkt sem besta klifursvæði á Indlandi og þar að auki kæmi mér það á óvart ef það er til svæði í heiminum með fleiri boulderum en hérna.

Hampi er stórt svæði en miðpunktur þess er það sem kallast “Hampi Bazaar” – þar eru flestar búllurnar og flest gistiheimili en þarna koma árlega mjög margir túristar og skoða allan þann fjölda af musterum ofl sem hægt er að sjá.

Flestir klifrarar halda samt úti á stað sem heitir “Virupapur Gaddy” en kallast oftast “Hampi Island” – eða “Hampi eyja” – Það er ekki eyja í hefðbundnum skilningi, en þar sem svæðið er umlukið ám með fáaum og brotnum brúum þá er helsti ferðamátinn af og á eyjuna með bát.

Hampi Island er lítill staður bara með nokkur gistiheimili og veitingastaði. Við erum hérna í raun á off-seasoni, svo það er mjög hljóðlátt og afar fátt fólk á ferli. Andrúmsloftið er súper-relaxed og margir koma hérna til að hanga, stunda jóga, reykja eitthvað annað en tóbak og svo koma aðrir bara til þess að klifra!

Klifur í Hampi (39)
Klifur í Hampi (44)

Klifur í Hampi (30)

Sólin kemur á loft um 6 leitið og sest kl 18:30 og upp úr kl 10:00 er orðið 30°C stiga hiti svo maður klifrar bara frá 6-10 á morgnanna og síðan verður pinku gerlegt að klifra aftur frá 17:30-18:30 – mér skilst samt að á aðal seasoninu sé aðeins kaldara og því getur maður ábyggilega klifrað stærri hluta af deginum.

Flestir klifrarar halda sig til á gistiheimili sem heitir “Goan Corner” sem rekið er af elskulegri konu sem heitir Sharmilla og eiginmanninum hennar. Hún leigir líka út dettidýnu, klifurskó, kalk ofl. Þar er líka rekinn veitingastaður (sem veitir ekki af, því Goan Corner er dálítið afskekktur staður miðað við restina af bænum)

Það eru samt fleiri staðir til að gista og amk 1 annar sem leigir út klifurdýnur og slíkt.

Tóbúinn finnur maður _eingöngu_ á stað sem heitir “Rollo Restaurant” og er rétt hjá gisitiheimi sem heitir “Beggum’s” sem hefur líka tengingar við klifur (en Beggum er nýlega dáin og börnin flutt burt, svo það er dálítið dottið uppfyrir)

Kostnaður

Indland er mjög ódýrt land á íslenskan mælikvarða. Gistinótt á Goan Corner (og flestum stöðum á Hampi Island) kostar um 150 RS (ca. 420 kr) fyrir single herbergi, 250 RS (700 kr) fyrir double með innbyggðu klósetti. Gæti verið örlítið dýrara á high-season (frá byrjun nóvember til lok janúar)

Máltíð á veitingastað með drykkjum kostar í kring um 100 RS (280 kr) fyrir eina manneskju – en nb. bjór er mjög dýr, 120 RS (340 kr) fyrir stóra flösku af “Kingfisher” af því það þarf að sækja það eitthvert annað og það er held ég tæknilega ólöglegt að selja áfengi í Hampi, svo þetta er eitthvað húllumhæ…

Leiga á dýnu á Goan Corner er ca 60, 70 eða 100 RS fyrir daginn (fer eftir stærð dýnunnar) ef maður vill ekki taka sína með sér. Það kostar 15 RS að taka bátinn yfir fljótið til að komast í Hampi Bazaar ef manni vantar eitthvað sem ekki fæst á eyjunni.

Klifur í Hampi (37)

Klifur í Hampi (26)

Klifur í Hampi (22)

Klifur í Hampi (20)

Klifur í Hampi (18)

Klifur í Hampi (15)

Klifur í Hampi (13)

Semsagt.. fyrir ca. 1000 ISK á dag (gistinótt + 2 máltíðir) ætti maður að geta lifað ansi góðu lífi hérna.

Fyrir þá sem áhuga hafa á að koma til Indlands að klifra þá er mesti kostnaðurinn við að fljúga en það ætti að vera hægt að fá miða á ca. 100-120þ fram og til baka til Mumbai (60þ aðra leið) … Og síðan að taka lestina frá Mumbai til Hospet (næsti bær við Hampi) – næturlest með loftkælingu er þá málið og kostar örugglega 7000 ISK.

Klifrið

Sama hvað þú keyrir marga kílómetra í burtu frá “aðal svæðinu”, þá eru risavaxnir boulderar sem þekja hvern fermeter. Hver einn og einasti steinn væri frægur á Íslandi, en hér eru þeir svo margir að maður er löngu hættur að horfa á þá.

Kletturinn er oftast mjög sársaukafullur viðkomu. Efni steinanna er granít og það er mjög grófgert en líka mjög hart, þannig að gripin eru oft eins og að grípa í hraun súkkulaði, nema mun harðara. Það stingst inn í puttana á manni og það er ekki beint húðin sem manni verkjar í heldur frekar vöðvarnir undir húðinni í puttunum.

Það eru endalaust margar leiðir eins og hægt er að ímynda sér, en þekktasti tóbúinn af svæðinu er sá sem búinn var til af Hari BLABLA – Hann er samt bara nokkur A4 blöð heftuð saman í svarthvítu, þar sem búið er að handteikna kort (að ég held eftir minni) af mismunandi svæðum og merkja inn á með tölum hvar leiðirnar eru.  Steinarnir eru oft risastórir en samt bara örlítill hringur á kortinu og svo tala og allt handteiknað og skrifað, þannig að oft getur verið erfitt að sjá hvar brautin liggur nema að vanari maður bendi manni á það.

Klifur í Hampi (29)

Klifur í Hampi (42)

Klifur í Hampi (4)

Gráðurnar í tóbúinum eru allar í Fountain Blu gráðum (frönsku gráðurnar) og spanna allt frá 4+ og til 8a og yfir. Þetta er ekki byrjendavænn staður til að klifra – Flestar leiðirnar eru í kring um 6b-7b og þar að auki eru þær oftast háar, algengast eru ca. 4-8m háar leiðir en sumar ná allt að 15m hæð!!! Maður þarf því oft að skilja áhyggjurnar eftir heima og reyna að vera soldið kærulaus og vona það besta :-)

Badami – sportklifur – línuklifur

Það er svæði í nokkurhundruð kílómetra fjarlægð (sem er stutt á Indverskan mælikvarða) sem heitir Bodomi, en þar er mjög svipaður klettur og hér í Hampi (mér skilst að hann sé mýkri), nema að þar eru háir veggir og hellingur af boltuðum leiðum – það er í raun helsta sportklifursvæði í Indlandi – svo þeir sem hafa áhuga á því, geta líka skellt sér í það.

Hvernig gekk mér svo?

Persónulega hef ég átt í miklum vandræðum með að venjast steininum (kallið í vælubílinn, nú byrjar það). Við erum búin að vera hérna í um 10 daga en mig verkjar samt ennþá alveg gífurlega í fingurna – þegar ég skrifa þetta á ég mjög erfitt með að klæða mig í buxur eða opna lásinn á hjólinu mínu…

Við förum eftir nokkra daga, svo ég veit ekki hvernig þetta er þegar maður er búinn að venjast steininum, en ég vonast til að geta komið hingað aftur eftir 1-2 mánuði þegar það er orðið örlítið kaldara og vonandi geta haft meiri tíma til að venjast gripunum.

Ég er búinn að klifra nokkrar 5+ leiðir (ca. V1 held ég) og (vonandi) eina eða tvær 6a leiðir (ca. V2 held ég) – ég hef verið að klifra 6b, 6b+ á íslandi (Hnappavöllum, Jósepsdal) svo ég kenni harða steininum um slappan árangur – eða erfiðum gráðum – eða ofgráðuðum leiðum á Íslandi…. veit ekki – en allavega, ég ætlaði að setja video en það gleymdist og svo byrjaði að rigna síðustu dagana svo það gekk ekki eftir…

Klifur í Hampi (9)

Klifur í Hampi (3)

Ég er búinn að kynnast skemmtilegu fólki hérna og margir mjög klárir klifrarar koma hingað. Flestir sem koma eru ekki svona miklir n00bar eins og ég, svo þær væri eflaust ekki með sama væl.

Að lokum.. gott boð:

Ef einhver klifrari hefur áhuga á að koma til Indlands og taka bouldering session, þá vantar mig alveg klifurfélaga hérna úti og væri alveg til í að hjálpa við að undirbúa ofl við komuna :-)

Klifur í Hampi (2)

Klifur í Hampi (1)

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , ,