Ég barðist við könguló í góðan hálftíma í gær. Það var mjög dramatískt og þó að ég hafi borið sigur undir lokin, þá er ég ekki frá því að smá partur af mér hafi dáið með köngulónni.
Þetta er kvikindið – ég er því miður ekki með mynd af henni með lappirnar úti, svo full stærðin sést ekki vel.
Jæja, Helga fer á morgun og leggur í hann til Íslands. Svona er dagskráin, ef einhver vill fylgjast með:
Hún fer í frá Hampi til Hospet á morgun til að taka lest
Lestin fer frá Hospet um kvöldið og er komin snemma um morguninn til Bangalore
Hún eyðir einum sólarhring í Bangalore, líklega í að horfa á sjónarvarpið í hótelherberginu
Hún flýgur ca. 7 um morguninn (Indv. tíma) 28. des
Kemur heim einhverntíma seinnipartinn eða um kvöldið sama dag
Hér eru svo fullt af skemmtilegum myndum frá hampi. Þær eru margar svo ég held ég nenni ekki að setja eina og eina inn í einu sorry.
Núna erum við búin að vera akkurat 3 vikur í Hampi. Eins og flestir hafa líklega heyrt þá er Helga búin að kaupa flugmiða heim, 28. desember en ég verð áfram í Hampi þar til ca. 20. janúar.
Við erum búin að vera að klifra nánast á hverjum degi, fyrir utan nokkra hvíldardaga.
Helga fór í vikunni í námskeið í thailensku nuddi, hjá Cyriac Joseph. Hún lærði “Level 1″, sem er lappir, hendur, axlir, höfuð og andlit.
Fyrir utan það er ekki mikið að frétta, þannig að þetta er stutt færsla með eingöngu einni mynd…
Við erum komin heim….heim til Hampi það er segja. Þvílík kyrrð fæst hvergi nema í Hampi og garðinum í Reykjabyggð 10
Við höfum klifrað aðeins og svo haft það gott með góðu fólki hér á gistiheimilinu. Við fengum aftur herbergi á Goan Corner. Sharmilla og Thakor, maðurinn hennar, reka það með Amit, sex ára gutta í spidermanbol og með skínandi plast-riffil. Strákar eru allsstaðar eins
Addi og Mattias spila skák og drekka ógeðisdrykki
Klukkan er 7 um morgun…ennþá svalt og já, Addi getur vaknað snemma er hann langar til þess!
Farið að hitna í kolunum…
Fyrsta klifursárið hennar Helgu, hún var mjög stolt! (enginn verður óbarinn biskup og allt það)
Þessar kellur koma annnan hvern dag og selja ávexti og hafa gert það í 12 ár. Fyrst kaupir Sharmila fyrir veitingastaðinn og svo megum við spreyta okkur. Þær eru æði þegar þær koma innkeyrsluna allar með körfuna sínar á hausnum
Hjónin á Goan Corner að búa til Nutella-doghnuts…keinuhringjadeig fyllt með súkkulaðismjöri og svo djúpsteikt. Nammi gott…Sharmilla bakar eina tegund af eftirrétt (sykurgúmmulaði) á hverju kvöldi
Myntu te…Helgu fannst það bara svo fallegt!
Prinsinn af Goan Corner!
Þetta er kökumaðurinn (cakeman)…hann röltir um klettana og selur klifrurum kökur Við höfum ekki enn keypt, við höfum ekki list á kökum klukkan átta á morgnana.
Þetta er svona skrítinn Indverskur maður sem að lifir í Asram (gistiheimili eða lítið samfélag þar sem allir fylgja sama gúrúinum), maðurinn á myndinni stundar jóga og hugleiðir, ferðast um með enga peninga og lifir á peningagjöfum. Hann gaf okkur öllum rautt og svart fræ (til heilla) og í staðinn fékk hann 10 rúbís (30 krónur).
Við fórum til Hampi town á föstudaginn með Tomi frá Finnlandi. Það var einhver hátíð, verið að fagna því þegar Rama og Shita (guðir) giftu sig. Við héldum að það ætti að taka vagninn út og draga hann eftir aðalgötunni (á vagninum er um 7 metra há stytta af Rama sem er skreytt með blómum og drasli). Það var ekki málið en okkur var sagt að á þessari hátíð kemur fólk frá nágrannabæjunum og hanga í Hampi. Klæða sig upp fara í hofin, biðja og svo hanga og tjilla fram á nótt..bara þetta sem við gerum á jólum og páskum…borða og tjilla saman og háma í sig nammi
Helga við nammibarinn…ekki svo gott nammi :/
Mannfjöldinn að fara í hofið eða musterið eða hvað sem þetta kallast á ísl
Þetta er svona duft til þess að skreyta sig í framan, rauða doppan og fleira skemmtilegt.
Perlufestar og fleira til sölu
Þessi kunni ekki ensku svo við vissum aldrei hvað var hægt að hlusta á!
Addi og Tomi að rölta, báðir mjög röltlegir!
sdfgsfd gsdfgs dfsdf
Þessi feita geit fékk græn horn fyrir hátíðina
nei þetta er sko ekki stelpu-mótorhjól!
Strákurinn stóð upp og ætlaði að færa sig þegar Addi tók myndina og var ekkert smá ánægður þegar Addi bað hann að setjast aftur. Olíulampar til sölu.