Við erum lent ódauð á Indlandi!
Það er stórskrítið að labba inn í teppalagða flugstöð með öryggisvörðum inn á hverju klósetti sem passa að maður þvo sér um hendurnar eftir að hafa migið og noti örugglega sápu og þurrki sér vel.
Annað sem er stórskrítið er að við að labba svo út úr flugstöðinni með umþb 300 leigubílstjóra beint fyrir utan, girtir af innan girðinga, eins og lömb í réttum, allir með sitthvort airport pickup skiltið öskrandi á mann hver yfir annan.
Eftir að hafa fundið mjög reiðan leigubílstjóra sem var með “Arnor Sigurdsson” á skilti þá komum við loksinns á “Hotel Highway Residency” – Þar voru nokkrir menn tilbúnir til að gera allt fyrir okkur – það var samt soldið skrítið að láta einhvern lítinn strák næstum bugast við að halda á báðum 13 Kg töskunum okkar fyrir okkur upp stiga og inn á herbergi…
Talandi um herbergið

Fallegar myndir


útsýnið










Okkur langar að lýsa því hvað það voru skítugir veggir, skítug loftræsting, skítug sturta beint fyrir ofan klósettið, rakt, heitt, myglað, skítugt osfrv, en myndirnar tala líklega sínu máli.
Svo er bara að skríða upp í moskítótjaldið okkar og reyna að ná smá svefni.