Út í óvissuna

Entries tagged as ‘Borgir’

Mysore

október 22, 2009 · 8 Ummæli

Mysore (2)

Það var fólk búið að segja okkur að Mysore væri skemmtilegri staður til að stoppa en Bangalore, svo við ákváðum að koma þar við á leiðinni til Kerala.

Það var alveg fínt að vera í nokkra daga í Mysore, eins og það átti að vera.. En síðan festumst við! Það byrjaði á því að Helga varð veik, fékk magapínu og hita. Hún slappaði því af í 2 daga og við lengdum hótelgistinguna… Svo varð Addi veikur!! Við ætluðum ekki að nenna að vera þarna lengur, svo við fengum lækni á staðinn – hann kom með pillur og allt batnaði á 2-3 dögum.

Síðan vorum við búin að tékka okkur af hótelinu, stefndum á rútustöðina, fundum rútuna.. en neibbs… ALLAR RÚTUR FULLAR. Örugglega eini dagurinn á árinu út af Dasara eða Diwali hátíðinni… Enn einn dagurinn í Mysore.. Við trúðum þessu ekki… Í þetta skiptið tékkuðum við okkur inn á eitthvað ódýrt (og ógeðslegt) hótel og þraukuðum einn dag í viðbót… Og svo erum við loksins SLOPPIN :D

Svona fyrir utan þetta var fínt í Mysore. Þar er svaka stór og flott höll, glæsilegur dýragarður og margt fleira.

Við hittum indverskan náunga í gegnum couchsurfing.org sem heitir Amit. Hann er yoga kennari og stundar líka “reiki” heilun. Við borðuðum með honum og 3 dönsurum frá New York, Perry bónda frá USA, Ann Marie frá Noreg og einhverri stelpu frá Hollandi eitt kvöldið. Það var skemmtileg tilbreyting að borða með og spjalla við fleira fólk.

Síðan elduðum við líka indverskan heimilismat eitt kvöldið, heima hjá Amit. Hann er með svona frekar lítið eldhús en við náðum samt að nota það til að flambera fína máltíð. Addi tók reyndar ekki mikinn þátt í því, Helga sá um þetta.

Mysore

Þetta er svo geðveikt, ef við gætum nú bara munað þessa fjóra punkta þá væri lífið betra :)

Mysore (1)

Muuuuu út í garði

Mysore (3)

Fyrir utan Mysore Palace

Mysore (4)

“Viltu slást?”

Mysore (5)

“Láttu kallinn minn í friði, kisa”

Mysore (6)

Matur með mörgum

Mysore (7)

Perry og Amit

Mysore (8)

Kakkalakki … jafn langur og langatöng

Mysore (9)

Addi fékk lakkrís í afmælisgjöf!!!

Mysore (10)

Graffití

Mysore (11)

Síminn auðvitað festur á tré

Mysore (12)

Hún sér eitthvað, enginn veit hvað

Mysore (13)

Les á meðan Helga og Amit búa til Indverskan heimilsmat, það var grenjandi rigning og húsið rafmagnslaust, þessvegna eru kerti og flassmyndir :)

Mysore (14)

Helga í Indverska eldhúsinu að elda á gólfinu – það er eins og hún hafi aldrei gert neitt annað….

Mysore (16)

Þetta er svo útkoman

Mysore (17)

Og svo borðuðum við.. Þetta var bara nokkuð gott

Mysore (18)

Fyrir utan hótelið okkar, “Hotel Airlines” (það er samt ekki nálægt flugvelli og tengist engu flugfélagi á neinn hátt)

Mysore (19)

Snyrtilegasta götuhornið í Mysore

Mysore (20)

Þetta er örugglega leiðinlegasta starf í heimi, umferðalögga! Kaótísk umferð, bílaflaut og mengun.

Mysore (21)

Addi orðin veikur! Þegar hann fer undir teppi í 30 stiga hita er ekki allt með felldu ;/

Mysore (22)

Þarna vorum við að komast að því að allar rútur eru fullur – við verðum áfram í Mysore

Mysore (15)

Hey… það geta ekki allar pósur heppnast fullkomlega…

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , , ,

Bangalore

október 19, 2009 · 7 Ummæli

Bangalore bangalore bangalore. Loksins eitthvað sem líktist siðmenningu. Eftir að hafa verið í strábýlum hverfum, með takmarkað rafmagn nema á vissum tímum og mis-góðan mat var algjör draumur að koma í hina vestrænu Bangalore.

Þeir segja hana vera Silicon Valley Indlands, heimili stærstu tölvufyrirtækja Indlands ofl. Hér eru frægustu skólarnir einnig og borgarbúar tala almennt frábæra ensku….

bangalore (10)

Í “The Botanic Garden”

bangalore (15)

Þetta er umferð

bangalore

Glaður að finna kaffihús með kaffi

bangalore (1)

Fyrsti espresso bollinn í nokkrar vikur… ú je

Hér gátum við fengið okkur símanúmer, internet og allar græjur. No questions asked.. svona fyrir utan vegabréfsafrit, nýja ljósmynd og staðfestingu frá hótelinu um að við værum á því.

Við nutum þess að fara á KFC, McDonald’s, ráfa um strætin þar sem borgarbúar ýmist browsuðu á feisbook í símanum sínum eða sötruðu latte yfir skólabókunum.

bangalore (16)

Til gamans: Sum af þeim fjölmörgu tólum og tækjum sem notuð hafa verið í baráttunni við moskítóflugur

bangalore (13)

Þeir eru gjarnan með heimspekina svona hér og þar til sýnis

bangalore (14)

Sækja þvottinn okkar í hreinsum. Band Box virðist vera sæmilega góð fatahreinsunarkeðja í Bangalore. Addi að lesa spekina.

bangalore (9)

Á ísl: Gerið svo vel að losa ekki þvag hérna, það er annars migið allsstaðar þar sem ekki er hús, við svona veggi og svoleiðis ;/

bangalore (8)

Nammi nammi namm

bangalore (7)

Það eru líka beljur í stóru borgunum

bangalore (6)

Borða doughnut

bangalore (5)

Óvenjuleg pósa á venjulegri gangstétt hjá venjulegri götu

bangalore (4)

Helga pantaði sér Masala Dosa með roomservice

bangalore (2)

Að tala í símann við Ísland, smekklegar nærbuxur sem einhver er að þurrka á handriðinu.

Við fórum líka á geðveikt góðan veitingastað þar sem Addi fékk besta green peas masala sem hann hefur smakkað.

Við kíktum einn daginn í Bangalore Botanic Garden. Þar var samt ekkert að sjá nema blóm og tré (ok, dálítið augljóst að Addi hafi skrifað þessa blog færslu)

bangalore (12)

Einkennilega langt en mjótt tré

bangalore blom

Mynd af flauelsblómum fyrir mömmu :)

bangalore (11)

Helga að borða ferskan ananas

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , ,