Út í óvissuna

Gisting

Hér er listi yfir öll hótel, gistiheimili og heimagistingar sem við gistum á og hvað okkur fannst um þau. Verðin eru öll miðuð við double-bed rúm og næstum allt er á off-seasoni með slatta af haggli….

ATH: Akkurat núna þá erum við smám saman að fylla í þetta, svo þetta er ekki alveg tæmandi listi.

Hotel Highway Residency – Mumbai

Hræðilega skítugt og ekki næs. Ágætt viðhorf hjá starfsfólkinu samt. Það er nálægt flugvellinum, en ég mundi ekki mæla með því fyrir neinn.

Borguðum ca 2.300 INR (minnir mig)

Hotel Skywings – Fort Kochi

Ótrúlega hreint og fínt hótel. Okkur fannst frábært að vera hérna. Sjónarvarp, heitt (volgt) vatn í sturtunni, klósettpappír ofl. Þau eru með þvottaþjónustu en ekki mikið fleira hvað þjónustu varðar. Rólegur staður pinku frá aðal-túristamiðbænum, en samt bara í 5 mín göngufjarlægð.

Við borguðum 500 INR fyrir slatta af haggling og það var mjög off-season. Season verðin hjá þeim eru ca. 1000 INR (2000 með A/C)

Baby House – Varkala

Hreint og fínt gistiheimili. Það er rekið af Sham og hann er fínn náungi. Móðir hans, Baby, gaf honum lóðina og þessvegna skírði hann gistiheimilið í höfuðið á henni. Það besta var að það var kassalaga moskítónet utan um allt rúmið, svo maður var ekki stanstlaust með moskítónetið í andlitinu.

Við borguðum 300 INR – vorum ekkert að prútta það niður – þetta var mikið ódýrara en hin gistingin í Varkala.

Goan Corner – Hampi

Hampi er svo ljúfur staður og þetta gistiheimili er samt dálítið út úr, svo það er mjög rólegt þarna. Maður gistir í hálfgerðum kofa með hálmþaki. Það eru hengirúm fyrir utan, moskítónet ofl. Sæmileg sturta, samt ekki með heitu vatni. Sharmilla sem rekur gistiheimilið er með nokkra hunda sem eru mjög krúttlegir. Sá stærsti er ljúfastur en sá minnsti er snar-geðveikur og reynir að bíta af manni hausinn ef maður snýr sér undan honum. Hundaæði?

250 INR fyrir nóttina

Brindavan Hotel – Bangalore

Allt í lagi hótel. Það er budget sectioninu á Lonely Planet en er samt dýrt. Gisting er tiltölulega dýr í Bangalore svo þetta er svona smá spes. Það er maður á hótelinu sem les í lófa fyrir smápening en við vissum það ekki fyrr en við vorum alveg að fara. Kannski næst. Herbergið var rúmgott og sæmilega hreint, en veggirnir soldið hrörlegir. Bara mjög basic.

850 INR

Hotel Airlines

Þetta hótel hefur nákvæmlega ekki neitt með neitt flugfélag að gera, það er ekki nálægt flugvelli og tengist flugi ekki á neinn hátt þrátt fyrir nafnið. Hreint og fínt herbergi, mjög lítið samt. Með sjónvarpi. Pinku dýrt miðað við stað og stærð.

700 INR

Rita ummæli

0 responses so far ↓

  • There are no comments yet...Kick things off by filling out the form below.

Rita ummæli