Út í óvissuna

Monkey Temple, Hampi

október 6, 2009 · 10 Ummæli

Monkey temple (6)

Við fórum stuttan túr með Rickshaw ökumanni að nafni Ganesh – fínn náungi þrátt fyrir að vera Rickshaw ökumaður…

Við fórum á stað sem ber heitið “Monkey Temple” – Pínulítið musteri á toppnum á einni hæðinni hér. Það eru um 600 tröppur upp að musterinu. Dálítið erfitt í 35°C hita.

Flestir koma þarna til að kíkja á apana og til að dást að útsýninu – það er einmitt það sem við gerðum.

Verðið að tékka á þessu videoi:

Monkey templeGanesh horfir út á vatnið og bíður eftir körfubátnum

Monkey temple (7)Helga í erfiðleikum með að Halda pósunni

Monkey temple (5)Ef þið hallið höfðinu þá sjáið þið að Addi stendur í raun á jörðinni og myndavélin hallar

Keyrt á leið í Apamusterið:

Monkey temple (3)Skemmtileg sveifla

Monkey temple (2)Stend yfir skólpánni á skólpbrúninni og drekk úr kókóshnetu með röri

Monkey temple (4)Helgu finnst þessi kókoshneta aðeins betri en Adda

Það var hátt í ánni sem umlykur Hampi Island (staðnum sem við gistum á) – þar sem flætt hafði yfir veginn, þurftum við að taka körfubát til að komast yfir af eyjunni og til baka.

Monkey temple (1)Látum drengstaulann vinna! Öðruvísi verður hann aldrei að almennilegum karlmanni… Hann aus af mikilum ákafa og áfergju.

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , , , ,