Út í óvissuna

Entries from október 2009

Fort Kochi

október 26, 2009 · 9 Ummæli

Loksins vorum við komin til Fort Cochin (breytt í Fort Kochi nýlega). Þetta er lítill hafnarbær á vesturströndinni með stóra sögu. Höfnin sjálf varð til í miklu flóði 1341 og síðan þá hefur bærinn verið mikilvægur suðupunktur kryddviðskipta á milli Inlands og heimsins. Það byrjaði allt í kringum 1400 þegar Fort Cochin  byrjaði að laða að sér kristna menn, araba og gyðinga frá mið austurlöndum. En það leið ekki á löngu þar til Evrópa kom og vildi að sjálfsögðu eiga pleisið. Portúgalar höfðu völdin frá um 1500 til 1663, en þá komu Hollendingarnir, drápu nokkra Portúgala og tóku völdin í hafnarbænum. Hollendingarnir voru mjög þrautseigir þar sem þeir stjórnuðu höfninni alveg til 1800 það var árið sem Englendingarnir komu, sáu og sigruðu. Þeir réðu ríkjum hér allt til ársins 1947, þegar Indland fékk aftur yfirráð yfir bænum.

fortcochiLoksins að bíða eftir rútu til Fort Kochi!

fortcochi (2)Geiturnar að jórtra á gangstéttarbrúninni…

Þetta er rosalega rólegur og fallegur bær og þó svo að hann sé klesstur uppvið stærra bæjarfélag nú á dögum líður manni samt eins og maður sé í smábæ. hér eru fallegar kirkjur og húsin eru með evrópskum blæ. Meira að segja eru gömlu kournar stundum í svona blóma sloppum eins og maður sér á spáni.

fortcochi (0)Atti á “Teapot”, mjög fallegt kaffihús með góðum mat og eðal-tei!

fortcochi (3)Rafvirkjarnir eru alveg jafn hæfileikaríkir hér í Fort Kochi…hahaha WTF

fortcochi (4)Addi á leiðinni í miðbæjinn, þarna er gömul kella í svona blómaslopp :)

fortcochi (5)Við fórum á Ítalskan veitingastað og Helga fékk alvöru bruchetta…hún var mjög hamingjusöm.

Á ströndinni við miðbæjinn eru bæjarbúar með svokölluð kínversk fiskinet. Engin smá smíði, það er greinilega nóg af fiski því þeir láta þetta bara síga, fiskarnir synda inn í netið og svo er bara að hífa þetta upp!

fortcochi (8)

fortcochi (9)

fortcochi (10)það er mjög greinilegt að Helga er dugleg með sólarvörnina…ennþá soldið hvít!

fortcochi (7)

Addi að vinna að nýrri pósu!

L1070154Hér er annað útibú Café coffee day, sem er aðal uppspretta espresso fyrir Addalinginn. Húsið er byggt utanum þetta tré sem kemur svo út úr þakinu eins og ekkert sé sjálfsagðara. Þeir eru sniðugir Indverjarnir.

Við náðum að fara í eina bátsferð (sérblogg seinna) og svo var Helga orðin veik, frekar leiðinlegt. Hún var með hita og kvef í nokkra daga og svo fengum við laugardag og sunnudag til þess að rölta um bæjinn. Við vorum búin að ákveða að fara á ferðskrifstofu á mánudeginum og fara í einhverja skemmtilega fíla eða safaríferð. Svo kom mánudagurinn og þá var Addi komin með hita….þetta er nú meira ruglið!! Hver ber ábyrgð á þessu öllu saman!!

fortcochi (15)

Fortið (virkið) í Fort Kochi…það er löngu búið að sprengja það í tætlur í áranna árásum. Það sem eftir er hefur sigið í sandinn með árunum…þessar rústir voru grafnar upp, steypt í kringum þær og svo var byggt safn yfir þær. Interesting!

fortcochi (12)Þetta er aðeins minna athyglisvert, en samt flott nafn á húsi…Thakur House!

fortcochi (11)ótrúlega krúttlegt hús og sofandi köttur…

fortcochi (13)Kaffihúsið var ekki með vínveitingaleyfi en það var ekkert mál að fá bjór í dulargerfi…

L1070181Þetta er greinileg ekki te sem Helga þambar!

fortcochi (16)

Vonandi verður Addi orðin góður von bráðar og þá klárum við Fort Cochin, við eigum enn eftir að sjá kryddmarkaðinn og einhverjar kirkjur! Koss og knúsar….

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , ,

Dýragarðurinn í Mysore

október 24, 2009 · 1 ummæli

Dýragarðurinn í mysore (8)

Við fórum í dýragarðinn í Mysore. Hann er talinn einn sá besti á Indlandi og þar virðist oftast vera nóg pláss fyrir öll dýrin og maður fær það alls ekki á tilfinninguna að þeim líði eins illa og dýrunum í dýragarðinum í Barcelona (sem var frekar sorglegur)

Við náðum ekki góðum myndum af öllum dýrunum, td. öpum, górillum, björnum ofl… svo þessar myndir verða að nægja

Svo tókum við fullt af videoum, en þau voru öll á hreyfingu og ekkert sást á þeim og það var bara eitt sem virkaði… af skjaldböku :D

Það eru reyndar mörg betri video af þessum dýragarði sem við eigum ekki heiðurinn af… ef einhver hefur áhuga á því, þá eru nokkur þeirra hérna:

Skógarbjörn:

Tígrisdýr:

Smá fræðsluyoutubeklippa (ég horfði ekki á hana, en hún er með fíla!)

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , , ,

Skítakall og indverskur skítakall

október 23, 2009 · 1 ummæli

Þessi færsla tengist ferðinni okkar eiginlega ekki neitt, heldur bara smá  upplýsingar um hvernig indverskur skítakall gengur fyrir sig. Það hafa margir komið til okkar og grát beðið okkur að kenna sér þennan bráðskemmtilega leik og þar sem það er svolítið erfitt gegnum feisbook eða skype, þá ákváðum við (eða bara Addi) að skrifa reglurnar hérna.

Það þekkja eflaust margir spilaleikinn “skítakall” eða stundum kallaður “þrjár litlar mýs”. Markmið spilsins er dálítið eins og í olsen, losna við öll spilin. Í grófum dráttum eru reglurnar í honum eitthvað á þessa leið (þetta endaði ýtarlegra en ég hugsaði fyrst):

  • Byrjun spilsins
    • Allir fá 3 spil á hvolfi í borð, 3 spil snúa rétt ofan á þau spil (semsagt 6 spil á mann)
    • Allir fá 3 spil á hendi – semsagt, samtals 9 spil á mann með spilunum sem eru í borði
    • (maður má skipta bestu spilunum sínum á hendi út fyrir efri spilin í borði)
    • Afgangurinn af stokknum er settur á mitt borðið
    • Sá sem er með lægsta spilið leggur það út við hliðina á stokknum (3 er lægstur, svo 4, svo 5)
  • Markmið spilsins er að losna við öll spilin af hendi og úr borði (en maður má ekki snerta spilin í borðinu fyrr en í lok spilsins).
  • Síðan gengur spilið í klukkna hring og allir setja, koll af kolli, lægsta spilið sitt sem er samt hærra en spilið sem var sett á undan. Ef Jói setur 6, þá getur Gunni sett 7,8,9,osfrv… Og ef Gunni setur 9, þá setur Hanna td. gosa…
  • Þegar spilari hefur sett út spil, þá dregur hann nýtt úr stokknum.
  • Maður má setja 2-4 eins spil niður (td, 2 fjarkar)
  • Ef spilari á ekkert sem er hærra en spilið sem er niðri, þá þarf hann að taka allan bunkan og setja lægsta spilið sitt niður
  • Gildi spilana
    • Hærra spil er betra, en ás er hæstur – en nokkur spil hafa ákveðna töfra eiginleika:
    • 2 gildir allt
    • 10 gildir allt og “sprengir” bunkan – þeas. ef maður setur 10 út (og þú getur sett 10 á allt), þá tekur maður allt sem var í bunkanum og hendir því til hliðar og þá er það hætt að vera með í spilinu og maður sér spilin aldrei aftur – Ef maður sprengir bunkan, þá setur maður síðan lægsta spilið sitt út
  • ef td. allir fjarkar eru settir út saman, sama hvort þeir voru settir af einni manneskju eða mörgum, þá sprengir það líka bunkan og maður setur síðan lægsta spilið sitt út.
  • Þegar öll spilin í stokknum eru búin og spilari stendur uppi með auða hendi, þá má hann byrja að nota spilin sem hann á í borði en hann verður að setja öll efri spilin 3 fyrst, áður en hann getur sett neðstu 3 – Þar að auki má spilari ekki kíkja á neðstu spilin, heldur nota þau í blindni…
  • Að “lauma” – Ath maður má lauma inn spili, ef td. fjarki er í borði og maður á fjarka, þá má maður henda honum inn á milli þó það sé ekki komið að manni.
  • Mér skilst að reglurnar séu líka þannig að ef þú átt tvö eða fleiri af einhverju spili, þá verðuru að setja þau öll þegar þú setur spilið út og maður verður líka alltaf undir öllum kringumstæðum að setja lægsta spilið sem maður á, út.
  • Áhætta: Ef þú átt ekkert spil sem passar, þá máttu líka taka áhættu. Þá seturði í blindni efsta spilið í stokknum á bunkan – ef það passar, þá ertu sloppin(n) en ef ekki, þá dreguru bara bunkan eins og áður, en ert komin(n) með enn fleiri spil á hendi

Ég man ekki meira og þetta er mikið ýtarlegra en ég ætlaði að hafa það.. ég er örugglega að gleyma einhvejru, endilega nefna það í commentum…. þar að auki getur vel verið að aðrir þekki aðrar reglur

Indverskur skítakall

Það getur vel verið að þessar reglur séu þekktar annar staðar og margir þekkja þetta kannski, en flestir í Indlandi virðast þekkja “shithead” eftir þessum “viðbótarreglum”

  • Til að byrja með þá eru fleiri spil sem virka öðruvísi
    • 2 gildir allt
    • 3 gildir það sama og spilið sem var sett niður á undan, td. ef einhver setur ás út og maður setur 3 ofan á, þá gildir 3 sem ás.
    • 4 er þá orðið lægsta spilið
    • 7 þýðir núna “lægra en 7″ – þeas. ef maður setur 7 út, þá verður sá næsti sem á að gera (og bara sá næsti) að setja spil sem er lægra en 7, td. 4, 5, 6 eða aðra 7, en þá þarf sá næsti að gera lægra en 7. Ath að maður má setja
    • 8 er stopp-spil. Þeas. ef maður setur áttu út, þá má sá sem á að gera næst, ekki gera í eitt skipti. Ef maður setur tvær áttur út, þá hoppar það yfir tvo spilara. Þannig að ef þrír eru að spila og maður setur tvær áttur út, þá á maður sjálfur aftur að gera.
    • 10 sprengir bunkan eins og áður
    • Ás er bestur eins og áður
  • Maður má ennþá lauma spilum inn, en eingöngu ef maður á nógu mörg þannig að þau verði 4 og sprengi bunkan – og þá er líka komið að manni að gera. Þannig að þú getur “stolið senunni”
  • Ef maður á ekkert spil sem er nógu hátt (eða lægra en 7 þegar 7 er í borðinu) þá þarf maður eins og vanalega að taka bunkan, NEMA: að þú setur ekki sjálfur spil út, heldur á sá sem á næst að gera að sjá um það.
  • Sá sem sprengir bunkan á samt sem áður að setja spil næst út.
  • ATH: Í Indverskum skítakall, ef maður á fleiri en eitt af einhverju spili, þá ræðuru hvort þú setur öll út strax eða eitt eða bara tvö. Þeas. ræður alveg hvernig þú notar þau. Þar að auki þarftu ekki alltaf að setja lægsta spilið þitt út – ef þú sérð strategískan hag í að setja ásinn þinn strax út, þá er það bara hið besta mál.
  • Áhætta er ekki memm.

Ég hvet alla til að prófa þetta, leikurinn verður aðeins meira interesting og það eru fleiri möguleikar á mismunandi strategíu…

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , ,

Mysore

október 22, 2009 · 8 Ummæli

Mysore (2)

Það var fólk búið að segja okkur að Mysore væri skemmtilegri staður til að stoppa en Bangalore, svo við ákváðum að koma þar við á leiðinni til Kerala.

Það var alveg fínt að vera í nokkra daga í Mysore, eins og það átti að vera.. En síðan festumst við! Það byrjaði á því að Helga varð veik, fékk magapínu og hita. Hún slappaði því af í 2 daga og við lengdum hótelgistinguna… Svo varð Addi veikur!! Við ætluðum ekki að nenna að vera þarna lengur, svo við fengum lækni á staðinn – hann kom með pillur og allt batnaði á 2-3 dögum.

Síðan vorum við búin að tékka okkur af hótelinu, stefndum á rútustöðina, fundum rútuna.. en neibbs… ALLAR RÚTUR FULLAR. Örugglega eini dagurinn á árinu út af Dasara eða Diwali hátíðinni… Enn einn dagurinn í Mysore.. Við trúðum þessu ekki… Í þetta skiptið tékkuðum við okkur inn á eitthvað ódýrt (og ógeðslegt) hótel og þraukuðum einn dag í viðbót… Og svo erum við loksins SLOPPIN :D

Svona fyrir utan þetta var fínt í Mysore. Þar er svaka stór og flott höll, glæsilegur dýragarður og margt fleira.

Við hittum indverskan náunga í gegnum couchsurfing.org sem heitir Amit. Hann er yoga kennari og stundar líka “reiki” heilun. Við borðuðum með honum og 3 dönsurum frá New York, Perry bónda frá USA, Ann Marie frá Noreg og einhverri stelpu frá Hollandi eitt kvöldið. Það var skemmtileg tilbreyting að borða með og spjalla við fleira fólk.

Síðan elduðum við líka indverskan heimilismat eitt kvöldið, heima hjá Amit. Hann er með svona frekar lítið eldhús en við náðum samt að nota það til að flambera fína máltíð. Addi tók reyndar ekki mikinn þátt í því, Helga sá um þetta.

Mysore

Þetta er svo geðveikt, ef við gætum nú bara munað þessa fjóra punkta þá væri lífið betra :)

Mysore (1)

Muuuuu út í garði

Mysore (3)

Fyrir utan Mysore Palace

Mysore (4)

“Viltu slást?”

Mysore (5)

“Láttu kallinn minn í friði, kisa”

Mysore (6)

Matur með mörgum

Mysore (7)

Perry og Amit

Mysore (8)

Kakkalakki … jafn langur og langatöng

Mysore (9)

Addi fékk lakkrís í afmælisgjöf!!!

Mysore (10)

Graffití

Mysore (11)

Síminn auðvitað festur á tré

Mysore (12)

Hún sér eitthvað, enginn veit hvað

Mysore (13)

Les á meðan Helga og Amit búa til Indverskan heimilsmat, það var grenjandi rigning og húsið rafmagnslaust, þessvegna eru kerti og flassmyndir :)

Mysore (14)

Helga í Indverska eldhúsinu að elda á gólfinu – það er eins og hún hafi aldrei gert neitt annað….

Mysore (16)

Þetta er svo útkoman

Mysore (17)

Og svo borðuðum við.. Þetta var bara nokkuð gott

Mysore (18)

Fyrir utan hótelið okkar, “Hotel Airlines” (það er samt ekki nálægt flugvelli og tengist engu flugfélagi á neinn hátt)

Mysore (19)

Snyrtilegasta götuhornið í Mysore

Mysore (20)

Þetta er örugglega leiðinlegasta starf í heimi, umferðalögga! Kaótísk umferð, bílaflaut og mengun.

Mysore (21)

Addi orðin veikur! Þegar hann fer undir teppi í 30 stiga hita er ekki allt með felldu ;/

Mysore (22)

Þarna vorum við að komast að því að allar rútur eru fullur – við verðum áfram í Mysore

Mysore (15)

Hey… það geta ekki allar pósur heppnast fullkomlega…

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , , ,

Bangalore

október 19, 2009 · 7 Ummæli

Bangalore bangalore bangalore. Loksins eitthvað sem líktist siðmenningu. Eftir að hafa verið í strábýlum hverfum, með takmarkað rafmagn nema á vissum tímum og mis-góðan mat var algjör draumur að koma í hina vestrænu Bangalore.

Þeir segja hana vera Silicon Valley Indlands, heimili stærstu tölvufyrirtækja Indlands ofl. Hér eru frægustu skólarnir einnig og borgarbúar tala almennt frábæra ensku….

bangalore (10)

Í “The Botanic Garden”

bangalore (15)

Þetta er umferð

bangalore

Glaður að finna kaffihús með kaffi

bangalore (1)

Fyrsti espresso bollinn í nokkrar vikur… ú je

Hér gátum við fengið okkur símanúmer, internet og allar græjur. No questions asked.. svona fyrir utan vegabréfsafrit, nýja ljósmynd og staðfestingu frá hótelinu um að við værum á því.

Við nutum þess að fara á KFC, McDonald’s, ráfa um strætin þar sem borgarbúar ýmist browsuðu á feisbook í símanum sínum eða sötruðu latte yfir skólabókunum.

bangalore (16)

Til gamans: Sum af þeim fjölmörgu tólum og tækjum sem notuð hafa verið í baráttunni við moskítóflugur

bangalore (13)

Þeir eru gjarnan með heimspekina svona hér og þar til sýnis

bangalore (14)

Sækja þvottinn okkar í hreinsum. Band Box virðist vera sæmilega góð fatahreinsunarkeðja í Bangalore. Addi að lesa spekina.

bangalore (9)

Á ísl: Gerið svo vel að losa ekki þvag hérna, það er annars migið allsstaðar þar sem ekki er hús, við svona veggi og svoleiðis ;/

bangalore (8)

Nammi nammi namm

bangalore (7)

Það eru líka beljur í stóru borgunum

bangalore (6)

Borða doughnut

bangalore (5)

Óvenjuleg pósa á venjulegri gangstétt hjá venjulegri götu

bangalore (4)

Helga pantaði sér Masala Dosa með roomservice

bangalore (2)

Að tala í símann við Ísland, smekklegar nærbuxur sem einhver er að þurrka á handriðinu.

Við fórum líka á geðveikt góðan veitingastað þar sem Addi fékk besta green peas masala sem hann hefur smakkað.

Við kíktum einn daginn í Bangalore Botanic Garden. Þar var samt ekkert að sjá nema blóm og tré (ok, dálítið augljóst að Addi hafi skrifað þessa blog færslu)

bangalore (12)

Einkennilega langt en mjótt tré

bangalore blom

Mynd af flauelsblómum fyrir mömmu :)

bangalore (11)

Helga að borða ferskan ananas

Flokkar: Uncategorized
Tagged: , , , ,